Spennandi tímabundið hlutastarf.
Stýrinefnd verkefnisins Strákar og hjúkrun auglýsir eftir verkefnastjóra í tímavinnu frá mars til júní 2021 til að sjá um kynningardag sem haldinn verður fyrir 9. bekkjar stráka 19. maí 2021. Laun eru samkvæmt kjarasamningum.
Helstu verkefni
- Samstarf og samskipti við þá sem koma að viðburðinum
- Skipulag viðburðarins
- Samband við skóla og skipuleggur ferðir
- Kynningarstarf
Hæfniskröfur
- Heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi. Starfið gæti líka hentað heilbrigðisnema
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mikil samstarfs- og samskiptahæfni
- Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021. Umsókn skal senda til Eyglóar Ingadóttur, eygloing@landspitali.is.
Nánari upplýsingar gefa Eygló Ingadóttir, eygloing@landspitali.is, sími 8255855 og Hildur Sigurðardóttir, hildusig@hi.is, sími 8937318.