Lög CURATOR
1. Nafn, markmið, félagar
1.1 Félagið heitir Curator, lögheimili þess og varnarþing eru í Reykjavík.
1.2 Markmið félagsins eru:
1.2.1 Að gæta hagsmuna nemenda og vera málsvari þeirra innan Háskóla íslands og utan
1.2.2 Að auka fræðslu og efla kynni meðal nemenda
1.2.3 Að auka erlend samskipti
1.2.4 Að stuðla að góðri samvinnu nemenda við aðrar heilbrigðisstéttir
1.3 Allir þeir sem stunda nám og eru innritaðir í námsbraut í hjúkrunarfræði eiga kost á að gerast meðlimir í Curator með því að greiða félagsgjöld.
2. Stjórn
2.1 Stjórn félagsins skal skipuð 8 hjúkrunarnemum; formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum auk fulltrúa 1. árs nema sem valinn er að lokum samkeppnisprófum og tekur hann þá sæti sem fjórði meðstjórnandi. Stjórn skal kosin með leynilegri kosningu á aðalfundi.
2.2 Formaður er helsti formælandi félagsins. Hann boðar stjórnarfundi og stýrir þeim. Varaformaður er formanni til aðstoðar um stjórn félagsins og einbeitir sér sérstaklega að innra starfi þess. Ritari sér um bréfaskriftir og skrifar allar fundargerðir auk því að sjá um heimasíðu félagsins og tölvupóst. Félagsmenn geta haft aðgang að fundargerðum ef þeir óska þess.
2.3 Meðstjórnendur í stjórn bera ábyrgð á skemmtanalífi hjúkrunarnema og koma í stað þess sem áður hét skemmtinefnd. Þeirra hlutverk er að efla félagslíf innan deildarinnar og skipuleggja hina ýmsu atburði fyrir félagsmenn Curator s.s. vísindaferðir, skíðaferð, eyjaferð, óvissuferð og hafa samstarf við aðrar deildir um sameiginlega viðburði sé þess kostur. Allur ágóði rennur til félagsins.
2.3.1 Tveir meðstjórnendur skulu sitja fundi hússtjórnar.
2.3.2 Meðstjórnandi sem kosinn er af 1.ári er einnig í claususnefnd og situr í embætti í eitt ár.
2.4 Æskilegt er að stjórn gefi út fréttabréf og/eða uppfæri heimasíðu einu sinni í mánuði eða oftar ef þörf krefur.
3. Félagsfundir
3.1 Aðalfundur skal haldinn í apríl ár hvert. Fundinn skal auglýsa í kennsluhúsnæði námsbrautarinnar með 7 daga fyrirvara. Æskilegt er að tilllögur til lagabreytinga, framboð og tilnefningar berist eigi síðar en 4 dögum fyrir aðalfund. Þær skal stjórn tilkynna með auglýsingu, að minnsta kosti 3 dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur telst löglegur ef ofangreindum skilyrðum er fullnægt.
3.2 Dagskrá aðalfundar:
3.2.1 Skýrsla fráfarandi stjórnar lesin upp.
3.2.2 Reikningar lagðir fram.
3.2.3 Lagabreytingar teknar fyrir
3.2.4 Embættismenn félagsins til næsta árs kosnir með leynilegri kosningu.
3.2.4.1 Stjórn (8) inni í því eru 3 meðstjórnendur og þar að auki 1. árs fulltrúi kosinn eftir áramót.
3.2.4.2 Árshátíðarnefnd (3) þar af 4. árs fulltrúi sem skipar formann.
3.2.4.3 Nefnd um erlent samstarf
3.2.5 Ákvörðun um félagsmál.
3.2.6 Önnur mál
3.3 Atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi hafa nemendur 1., 2. og 3. árs í hjúkrunarfræðideild sem eru meðlimir í Curator
3.4 Reikningar félagsins miðast við 1. september ár hvert.
3.5 Utanaðkomandi aðili skal fara yfir reikninga félagsins fyrir 1. september
3.6 Fundargerð síðasta aðalfundar skal lesin upp og staðfest á fyrsta félagsfundi eftir aðalfund.
3.7 Félagsfund ber að halda hvenær sem stjórn telur nauðsynlegt. Þá skal halda fund þegar fleiri en 10 félagar óska þess. Fundinn skal boða með minnst sólarhrings fyrirvara.
3.8 Kynningarfund fyrir 1. árs nema skal halda eins fljótt og auðið er á haustönn.
4. Nefndir og ráð
4.1 Nefnd um erlent samstarf skal sjá um samskipti við félög hjúkrunarfræðinema í öðrum löndum og stefna á að senda fulltrúa á ráðstefnur hjúkrunarnema erlendis. Æskilegt er að í nefndinni séu 3 fulltrúar, sem sitja tvö ár í senn. Nefndin skal skipa formann sem er helsti formælandi hennar.
4.2 Árshátíðarnefnd samanstendur af þremur nemendum hjúkrunarfræðideildar. 4. árið skal velja fulltrúa sinn í nefndina og er hann formaður Árshátíðarnefndar. Árshátíðarnefnd skipuleggur árshátíð í samráði við stjórn Curator.
4.3 Á deildarfundum situr einn nemandi af hverju ári. Æskilegt er að sami nemandi sitji fyrir sinn bekk öll fjögur árin en hann getur þó hætt ef hann finnur sér eftirmann. Fulltrúar 3. og 4. árs á deildarfundum sitja einnig í deildarráði. Auk þess situr formaður Curators deildarfundi. Fulltrúarnir skulu hafa varamenn sem mæta á fundi þegar þeir eru forfallaðir.
4.4 Fulltrúi frá hverju ári situr í námsnefnd. Skal hann valinn strax að loknum samkeppnisprófum og situr hver fulltrúi helst í 4 ár, en getur þó hætt finni hann sér eftirmann. Nefndin sér um fræðslu- og hagsmunamál fyrir nemendur deildarinnar í samstarfi við stjórn Curator. Fulltrúi 3. árs situr jafnframt í námsmatsnefnd.
4.5 Stjórn Curator skal boða alla fulltrúa í nefndum og ráðum á sinn fund einu sinni á ári.
5. Kosning
5.1 Í hvert embætti skal kosið sér kosningu. Einnig skal kjósa hverja nefnd sér kosningu. Falli atkvæði jafnt skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar
6. Ýmislegt
6.1 4. árs nemar skulu sjá um útgáfu tímaritsins CURATOR. Ritnefnd skal skipuð a.m.k. þremur 4.árs nemum. Efni í blaðinu skal í meginatriðum vera hjúkrunarlegs eðlis. Ritnefnd hefur sjálfstæðan fjárhag og sér um fjármögnun fyrir útgáfu blaðsins. Ritnefnd hefur leyfi til að nota kennitölu Curator , en bankareikningum í nefni blaðsins skal loka strax að uppgjöri þess loknu. Hagnaður af útgáfu CURATOR skal renna í ferðasjóð 4.árs nema.
6.2 Nemendafélagið Curator skal ekki standa straum af kostnaði fjáföflunaraðgerða 4.árs nema s.s. leigu á húsnæði fyrir bjórkvöld o.fl.
6.3 Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi eða venjulegum félagsfundi, sé boðað til hans á sama hátt og aðalfundar.
Lögum þessum var síðast breytt á aðalfundi þann 7. apríl 2006